Góð hugmynd [myndband]

Og þetta myndband útskýrir afhverju...



Mæli sterklega með að þið horfið á þetta í gegn áður en þið tjáið ykkur um það.

---

Þetta er auðvitað pjúra kaldhæðni, bæði videóið og færslan sjálf. Pólitíkusar fá þessa hugdettu um siðgæðis-síu af og til, en ég hef sérstaklega miklar áhyggjur í þetta skiptið. Núverandi stjórn er mjög líkleg til að hrinda svoleiðis í framkvæmd, eða í hið minnsta gefa góðan lagagrundvöll fyrir þannig lagað. Á yfirborðinu hljómar þetta vel, "vernda börnin", loka fyrir vondar síður. En í raun er verið að stofna upplýsingafrelsi hér á landi í stórhættu, það hefur sýnt sig og sannað að barnakláms-síurnar erlendis eru notaðar til að loka fyrir síður á borð við wikileaks og aðrar sambærilegar síður með "óhentugar" upplýsingar sem almenningur ætti að hafa aðgang að. Þetta er fyrsta skrefið...


mbl.is Vill heimild til að loka fyrir aðgang að tilteknum vefsvæðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.